Heimsóknatölur án vafrakaka
Vefurinn telur heimsóknir á vefþjóninum sjálfum. Ekkert forrit keyrir í vafranum þínum vegna talningarinnar, engin vafrakaka er sett og hvorki IP-tala né tækjaauðkenni eru vistuð. Geymt er hvaða síða var skoðuð, hvenær og hvort tækið var sími, tölva eða spjaldtölva. Af þessum tölum er ekki hægt að rekja neitt til þín.
Vafrakökur með þínu samþykki
Þegar þú opnar vefinn birtist borði þar sem þú getur samþykkt vafrakökur. Hafnir þú þeim er engin mælikaka sett. Samþykkir þú þær hlaða tvö verkfæri: Google Analytics og Google Ads frá Google, og Meta Pixel frá Meta (Facebook). Þau setja vafrakökur til að mæla notkun vefsins og árangur auglýsinga okkar. Þú getur dregið samþykkið til baka með því að eyða vafrakökum vefsins í vafranum þínum; þá birtist borðinn aftur.
Eyðublöð
Þegar þú sendir fyrirspurn, svarar spurningalista eða biður um léttsíðu berast okkur upplýsingarnar sem þú slærð inn, svo sem nafn, netfang, símanúmer og skilaboð. Fyrirspurnir berast með tölvupósti og svör við spurningalistum eru vistuð í gagnagrunni Emstra. Við notum þær eingöngu til að svara þér og vinna verkið sem þú baðst um. Til að verjast ruslpósti skráum við tímabundið IP-tölu sendanda og notum Turnstile frá Cloudflare, sem greinir hvort sendandi er manneskja.
Auglýsingamælingar
Þegar fyrirspurn eða pöntun er send látum við Meta vita af aðgerðinni um vefþjón okkar, ásamt IP-tölu og gerð vafra, svo Meta geti tengt hana við auglýsingu sem þú gætir hafa séð. Vinnslu Meta er lýst á facebook.com/privacy/policy. Þessi sending fer fram óháð vafrakökum.
Ókeypis vefskönnun
Látir þú skanna lén vistum við lénið og tætta (hashed) útgáfu af IP-tölu þinni til að takmarka fjölda skannana frá sama stað. IP-talan sjálf er ekki geymd.
Google-þjónustur sem Emstra notar innanhúss
Emstra notar innra verkfæri sem tengist Google Ads-reikningi fyrirtækisins sjálfs í gegnum Google Ads API. Verkfærið les skýrslur um okkar eigin auglýsingar og áætlaðar leitartölur fyrir leitarorð. Það vinnur engar upplýsingar um gesti þessa vefs eða viðskiptavini og deilir engu með þriðja aðila. Notkun Emstra á upplýsingum úr Google API-þjónustum fylgir Google API Services User Data Policy, þar með töldum kröfum um takmarkaða notkun.
Hýsing og geymslutími
Vefurinn og gagnagrunnur hans eru hýst á vefþjóni Emstra hjá Hostinger í Manchester í Bretlandi. Bretland nýtur ákvörðunar Evrópusambandsins um fullnægjandi vernd og flutningur þangað er því heimill samkvæmt persónuverndarlögum. Fyrirspurnir og svör við spurningalistum geymum við meðan samskiptin standa og þar til þú biður um að þeim sé eytt. Bókhaldsgögn geymum við í sjö ár eins og lög um bókhald krefjast.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar við geymum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt og andmæla vinnslu. Sendu beiðni á [email protected] og við svörum innan mánaðar. Teljir þú að við höfum farið rangt með upplýsingar þínar getur þú kvartað til Persónuverndar á personuvernd.is.
Þessi útgáfa er frá 14. september 2026. Við uppfærum stefnuna þegar vefurinn eða vinnslan breytist.