Svona lítur það út
Skjámyndir úr stjórnborðinu eins og það er í dag.



Það sem er í kerfinu
Hver vefur fær þá hluta sem reksturinn þarf.
Efni
Allur texti á vefnum á einum stað. Þú skrifar yfir hann og vistar.
Síður
Nýjar síður og röðin í valmyndinni. Beiningar þegar gömul slóð á að lenda annars staðar.
Greinar
Fréttir og greinar með ritli, mynd og eigin slóð.
Myndir
Myndasafn vefsins. Dragðu inn mynd og veldu hana hvar sem er.
Hero
Forsíðumyndin: ljósmynd, myndband eða myndasyrpa.
Heimsóknir
Hversu margir koma, hvaðan þeir koma og á hvaða síður þeir fara.
Sýnileiki
Sjálfvirk úttekt á því hvað Google og gervigreind sjá, með hnappi til að laga það sem vantar.
Tungumál
Vefurinn á fleiri en einu tungumáli, með þýðingarhjálp.
Notendur
Fleiri en einn með aðgang, hver með sitt lykilorð.
Fréttabréf
Grein verður að uppkasti að fréttabréfi í póstkerfinu þínu.
Viðbætur
Sérlausnir eftir rekstri: bókanir, vörulistar, myndasöfn, skjöl og fleira.
Þrjú skref
Skráðu þig inn
Þú færð slóð og aðgang og skráir þig inn í vafranum.
Finndu textann
Textinn á vefnum er reitur í stjórnborðinu. Forskoðunin sýnir hvar hann situr.
Vistaðu
Breytingin birtist á vefnum innan mínútu.
Emstra rekur vefinn áfram eftir að hann fer í loftið, svo það er alltaf hægt að hringja.
Fyrir gistihús og hótel fer bókunarvélin inn á vefinn og bókanirnar birtast í tölfræðinni. Sjá síðuna fyrir gististaði.
Hafðu samband
Segðu okkur frá verkefninu.
Sendu okkur línu og við svörum eins fljótt og auðið er.