Beinar bókanir á vefnum. Þóknunin skilar sér til þín.
Booking.com, Airbnb og Expedia taka þóknun af hverri nótt, oftast 15–25 prósent. Emstra smíðar vefsíðu fyrir gistihúsið þitt með bókunarvélinni inni á vefnum, svo gestir bóka beint hjá þér. Síðan er skrifuð svo bæði Google og gervigreindin finni gistihúsið. Vefsíður frá 380.000 kr. án vsk., hýsing 3.990 kr. á mánuði.
Reikna þóknuninaReiknaðu hvað Booking.com, Airbnb og Expedia taka af þér á ári
Reiknivélin sýnir hvað bókunarsíðurnar taka í þóknun á ári og hversu margar beinar bókanir borga upp vefsíðuna.
Miðað er við vefsíðu á 380.000 kr. og hýsingu á 3.990 kr. á mánuði, hvort tveggja án vsk. Sjálfgefin 15% er algeng þóknun á þekktum bókunarsíðum, en hún er stillanleg því hún er misjöfn eftir síðum og samningum.
Fá fría úttekt á vefnum þínumBókunarvélin er partur af vefnum
Gestirnir bóka á þínum vef og bókunarvélin er hluti af vefnum, í þínum litum og á þínu léni.
Bókunarvélin hluti af vefnum
Bókunarvélin er sett beint inn í síðuna og aðlagast vefsíðunni þinni. Í vefumsjón getur þú svo séð hversu margir bóka beint í gegnum vefinn.
Laus herbergi í rauntíma
Vefurinn spyr bókunarvélina hvort laust sé á völdum dögum og merkir uppselt áður en gesturinn smellir.
Leit gesta í vefsíðukerfinu
Dagsetningar, fjöldi nátta og hvaða herbergi var skoðað. Þú sérð hvað fólk leitaði að, líka þegar allt var uppselt.
Bókanir inn í tölfræðina
Þegar bókun klárast skilar bókunarkerfið henni inn í tölfræðina þína í vefsíðukerfinu. Þú sérð bókanir, tekjur og leitir gesta á einum stað.
Við höfum valið að vinna þétt með Godo og BookVisit. Ef þú notar aðra bókunarvél getum við að sjálfsögðu tengt hana við þína síðu.
Hvað vefurinn er að skila
Tölfræðin birtist í vefsíðukerfinu um leið og leitir eða bókanir mælast.
Bókanir og tekjur
Fjöldi bókana, breyting frá fyrra tímabili og meðalupphæð á bókun.
Leitir og uppselt
Hversu oft var leitað og hve stór hluti leitanna lenti á uppseldum dögum.
Trektin
Síðuflettingar sem verða að leit, og leitir sem verða að bókun.
Dvöl og fyrirvari
Hversu margar nætur að meðaltali og hve löngu fyrirfram fólk bókar.
Eftirspurn eftir mánuðum
Hvaða mánuðir eru eftirsóttir og hvar var uppselt.
Bókanir eftir herbergi
Hvaða herbergi eða tegund selst og hvað situr eftir.
Restin af vefnum
Íslenska og enska
Vefurinn á fleiri en einu tungumáli. Erlendir gestir lesa sömu síðu á sínu máli.
Google og gervigreind
Síðurnar eru skrifaðar svo bæði leitarvélar og gervigreind finni gistihúsið og geti mælt með því.
Myndir af staðnum
Myndasafn sem þú fyllir sjálf/ur. Herbergi, umhverfi og aðstaða.
Kort og leiðarlýsing
Staðsetning á korti sem opnast rétt í símanum, með leiðarlýsingu frá þjóðvegi.
Síminn fyrst
Flestir sem leita að gistingu gera það í símanum. Síðan er byggð fyrir það.
Eigið lén og hýsing
Emstra sér um lén, hýsingu og öryggisvottorð. Þú færð einn reikning.
The Garage undir Eyjafjöllum
Gistihús á Suðurlandi með Godo bókunarvélina inni á vefnum, laus herbergi í rauntíma og verð beint úr kerfinu.
Skoða thegarage.isFast verð er gefið eftir að við höfum farið yfir hvað þarf. Hýsing og rekstur 3.990 kr. án vsk. á mánuði.
Algengar spurningar
Get ég haldið bókunarkerfinu sem ég er með?
Já. Við höfum valið að vinna þétt með Godo og BookVisit. Ef þú notar aðra bókunarvél getum við að sjálfsögðu tengt hana við þína síðu.
Þarf ég að hætta á bókunarsíðunum?
Nei. Vefurinn kemur til viðbótar við þær. Bókanir sem koma beint í gegnum þinn vef fara í gegnum þitt eigið bókunarkerfi.
Hver skrifar textann?
Þú getur skrifað hann sjálf/ur í vefumsjóninni eða við gerum drög og þú lagar. Textinn er þinn og þú breytir honum hvenær sem er.
Hvað tekur þetta langan tíma?
Það fer eftir umfangi og hversu fljótt myndir og textar berast. Tímarammi fylgir verðtilboðinu.
Hvað þýðir að vefurinn sé tilbúinn fyrir gervigreind?
Sífellt fleiri spyrja gervigreindina um gistingu í stað þess að googla. Vefurinn þarf að svara skýrt hver þú ert, hvar þú ert, hvað gistingin kostar og hvernig er bókað, á formi sem þessi kerfi lesa. Það fylgir hverjum vef frá Emstra.
Hvernig fæ ég gesti til að bóka beint?
Gestir sem finna þig á Google eða í gervigreind fara inn á þinn vef. Þar sjá þeir laus herbergi og verð og bóka á staðnum. Margir gefa ástæðu til að bóka beint, til dæmis morgunmat eða seinni útritun. Það er þín ákvörðun og þú stillir það sjálf/ur. Við getum líka hjálpað þér við markaðssetningu á netinu ef þú óskar.
Frí úttekt
Sendu okkur slóðina á vefinn þinn
Við skoðum hvort Google og gervigreindin finni gistihúsið og hvernig bókunarleiðin lítur út. Þú færð stutta samantekt í tölvupósti, þér að kostnaðarlausu