Vefsíður og sérlausnir

Við gerum vefsíður

Þú breytir vefsíðunni sjálfur, án þess að læra á flókið kerfi.

Vefsíður frá 240.000 kr. án vsk. Skriflegt tilboð áður en verkið hefst.

Vefsíðan er fyrsta samtalið

Fólk leitar á netinu áður en það hringir eða kemur við. Það sem það finnur ræður því hvort það hringir yfirleitt.

Vefsíða sem er úrelt, hæg eða finnst ekki á Google kostar viðskipti sem þú veist aldrei af. Vefsíða sem þú getur ekki uppfært sjálfur verður úrelt á endanum, sama hversu vel hún var gerð í upphafi.

Einfalt vefumsjónarkerfi

Flest kerfi eru byggð fyrir vefhönnuði. Okkar er byggt fyrir þig: þú opnar síðuna, smellir á textann og skrifar.

Leitarvélar og gervigreind

Fólk spyr gervigreind í dag þar sem það gúglaði áður. Við byggjum síðuna þannig að bæði leitarvélar og gervigreind finni hana, lesi hana og vitni í hana.

Persónuleg þjónusta

Þú talar við þann sem smíðar síðuna. Sami aðili svarar þegar eitthvað þarf að laga.

Umsagnir viðskiptavina

Ég hef mjög góða reynslu af mínum samskiptum við Emstru. Skjót og fagleg vinnubrögð, eigandi hugmyndaríkur og samskiptavænn. Ég gef Emstru einkunnina A+.
Kína-Ísland sf
Afar góð og persónuleg þjónusta. Mæli með Emstru.
Austurgátt-Þýðingar ehf.
Við erum mjög ánægð með þjónustuna sem Emstra bíður uppá. Skjót viðbrögð, fagmennska og ekkert vandamál sem þeir geta ekki leyst! Mælum 100% með.
Sveitabúðin UNA ehf.
Mitt fyrirtæki hefur nýtt þjónustu Emstra með góðum árangri . Það er frábært að hafa svona þjónustu á svæðinu og þurfa ekki að leita til Reykjavíkur þar sem ferðakostnaður er ávallt hluti af kostnaði.
Viðskiptaþjónusta Suðurlands ehf

Hvað er innifalið

  • Hönnun sniðin að fyrirtækinu

  • Vefumsjónarkerfi þar sem þú breytir efninu sjálfur

  • Síðan virkar á farsíma, spjaldtölvu og tölvu

  • Leitarvélabestun (SEO) frá byrjun

  • Tengiliðaform sem sendir fyrirspurnir beint til þín

  • Google Maps með staðsetningu fyrirtækisins

  • SSL-vottorð og öruggt hýsingarumhverfi

  • Þjálfun í kerfinu þegar síðan fer í loftið

Verð

Vefsíður frá 240.000 kr. án vsk.

Þú færð skriflegt tilboð áður en verkið hefst.

Hýsing og rekstur 3.990 kr. án vsk. á mánuði.

Fá tilboð

Sérlausnir fyrir reksturinn

Ef vefsíða ein og sér leysir ekki verkefnið smíðum við kerfið sem gerir það.

Innri kerfi

Verkfæri fyrir starfsfólkið: gögn, yfirlit og aðgangsstýring á einum stað.

Sjálfvirkni

Kerfin þín tala saman og endurtekin handavinna hverfur.

Vörulistar og tilboðsbeiðnir

Vörur, verð og fyrirspurnir í kerfi sem þú uppfærir sjálfur.

Skráningar og form

Umsóknir, skráningar og beiðnir sem skila sér beint til réttra aðila.

Öpp fyrir iPhone og Android

Native öpp þegar vefsíða dugar ekki fyrir verkefnið.

Ferlið

  1. Við tökum stutt spjall um hvað þig vantar.

    Við förum yfir hvað fyrirtækið gerir, hverjir viðskiptavinirnir eru og hvað síðan á að skila. Þú færð skriflegt tilboð eftir það.

  2. Við smíðum síðuna.

    Þú sérð síðuna verða til og kemur með athugasemdir áður en hún fer í loftið.

  3. Þú færð aðgang og breytir efninu sjálfur.

    Við förum yfir kerfið með þér. Eftir það uppfærir þú efnið sjálfur, eða við gerum það fyrir þig ef þú vilt.

Algengar spurningar

Hvað kostar vefsíða hjá Emstra?

Vefsíður byrja í 240.000 kr. án vsk. Þú færð skriflegt tilboð áður en verkið hefst svo verðið liggur fyrir frá byrjun.

Get ég breytt efninu sjálfur eftir á?

Já. Þú færð aðgang að vefumsjónarkerfinu okkar og skrifar beint á síðuna. Við förum yfir kerfið með þér þegar síðan fer í loftið.

Hvað kostar hýsing og hvað er ekki innifalið?

Hýsing og rekstur kostar 3.990 kr. án vsk. á mánuði. Lén er ekki innifalið, hvorki nýtt lén né endurnýjun á því sem fyrir er.

Virkar síðan í farsíma?

Já, allar vefsíður frá Emstra virka á farsímum, spjaldtölvum og tölvum.

Finnst síðan á Google og í gervigreind?

Við sjáum til þess að leitarvélar og gervigreind finni síðuna þína og noti hana. Það er hluti af vinnunni, ekki aukagjald.

Hversu langan tíma tekur verkið?

Það fer eftir umfangi. Við gefum upp tímaramma í tilboðinu og þú veist hvenær síðan fer í loftið.

Ég er með vefsíðu sem enginn sinnir lengur. Getið þið tekið við henni?

Já. Við tökum við vefsíðum í rekstur, lögum það sem er brotið og höldum þeim uppfærðum. Stundum borgar sig að byggja nýtt og stundum ekki, og við segjum þér hvort á við.

Hafa samband

Emstra tölvuþjónusta ehfÖldugerði 4, Hvolsvöllur856 2400[email protected]Kt. 571025-1240