Tæknihönnun & 3D prentun

Frá hugmynd að áþreifanlegum hlut

Ég er menntaður tæknihönnuður frá Danmörku og hanna hluti sem virka — sérlausnir, varahluti, frumgerðir og smáframleiðslu. Hönnunin verður til í CAD og hluturinn hér heima á Suðurlandi.

Fáðu verðtilboðHvað get ég gert?
Tæknihönnun

Góður hlutur byrjar á réttri hönnun

Ég er menntaður tæknihönnuður frá Danmörku. Fagið snýst um að skilja hvað hlutur á að gera — álag, mál, efni, samsetningu — og hanna hann þannig að hann virki. Sú vinna fer fram í CAD, löngu áður en nokkuð er framleitt.

Hvort sem þig vantar einn sérsmíðaðan varahlut, frumgerð fyrir vöru eða litla framleiðsluseríu — þá færðu hönnuð sem fylgir hlutnum frá hugmynd að fullbúinni útgáfu, allt á einum stað hér á Suðurlandi.

Tæknihönnun — frá CAD-teikningu að fullbúnum hlut

Menntaður tæknihönnuður

Nám í tæknihönnun frá Danmörku og reynsla af CAD-hönnun íhluta í Solidworks. Þú færð hlut sem er hannaður rétt frá upphafi.

Hannað og framleitt á Íslandi

Allt verður til hér heima á Suðurlandi. Engin innflutningsgjöld, enginn tollur, engin margra vikna bið — og þú talar beint við hönnuðinn.

Hönnunin er þín

Þegar hluturinn er hannaður áttu skrána. Auðvelt að framleiða fleiri, breyta eða þróa áfram — þú ert ekki fastur í einu eintaki.

Tæknihönnuður hjá Emstra
Hönnuðurinn

Sigurmundur Páll — tæknihönnuður

Ég lærði tæknihönnun (teknisk designer) í Danmörku og starfaði hjá Carmo a/s í Danmörku við að hanna og þrívíddarmóta íhluti í Solidworks. Þar lærir maður að hlutur er ekki tilbúinn þegar hann lítur vel út — heldur þegar hann þolir notkunina.

Í dag nýti ég sömu aðferðir fyrir fólk og fyrirtæki á Íslandi — frá stökum varahlutum upp í eigin vörulínur.

  • Tæknihönnun · Danmörk
  • Solidworks / CAD
  • Carmo a/s · framleiðsluiðnaður
Þjónustan

Hvað get ég hannað fyrir þig?

Sérhönnun frá grunni

Þú lýsir hlutnum — ég hanna hann í CAD frá A til Ö. Rétt mál, rétt þol, rétt virkni. Fagleg tæknihönnun, ekki sniðmát af netinu.

Endurgerð íhluta

Brotinn eða ófáanlegur hlutur? Ég mæli hann upp og teikna nákvæma eftirmynd — og bæti hann jafnvel þar sem upprunalega hönnunin brást.

Frumgerðir

Prófaðu hugmyndina í höndunum áður en þú framleiðir í magni. Fljótleg leið frá skissu að áþreifanlegri frumgerð sem hægt er að endurbæta.

Varahlutir

Handfang, festing, tannhjól, hulstur — smáhlutir sem enginn selur lengur. Ég hanna þá upp á nýtt og framleiði hér heima.

Smáframleiðsla

Þarftu 10, 50 eða 200 eintök af sama hlutnum? Framleitt í seríum með stöðugum gæðum og föstu verði.

Hönnunarráðgjöf

Ertu með hugmynd en veist ekki hvort hún gangi upp? Við förum yfir virkni, efni, þol og útfærslu áður en nokkuð er framleitt.

Sérstaða

Það sem fáir aðrir bjóða

Efnisval

Rétt efni fyrir rétt verkefni

Frá sjónrænum líkönum að burðarhlutum sem þola hita, veður og álag. Efnisvalið er hluti af hönnuninni — við veljum það út frá því hvað hluturinn á að gera.

PLA / PLA+

Fyrir sjónræna hluti, líkön og innanhússnotkun. Skarpar útlínur og fjölbreytt litaúrval.

PETG

Sterkt og seigt. Fyrir hluti sem þurfa að þola hnjask, raka og daglega notkun — sama efni og pílukastsarmarnir.

TPU (sveigjanlegt)

Gúmmíkennt efni fyrir þéttingar, gripfleti, púða og hluti sem mega beygjast án þess að brotna.

ABS / ASA

Hita- og veðurþolin efni fyrir hluti sem standa úti í sól og frosti — festingar, hlífar og íhluti í bíla og tæki.

Nælon & koltrefjastyrkt

Fyrir burðarhluti sem taka raunverulegt álag — tannhjól, arma og festingar. Stíft, slitsterkt og létt.

Hátækniefni

PC, PPA og PPS fyrir kröfuhörðustu verkefnin — mikinn hita, efnaálag og iðnaðarnotkun. Metið í hverju tilviki.

Ferlið

Fjögur skref að fullbúnum hlut

Hugmynd

Þú sendir mér skissu, ljósmynd, mál eða bara lýsingu. Ég met hvað er hægt og geri verðtilboð.

Hönnun

Ég teikna hlutinn í CAD og sendi þér mynd til samþykkis. Þú sérð nákvæmlega hvað þú færð áður en prentað er.

Prentun

Rétt efni, réttar stillingar. Prentað hér heima með eftirliti — engin innflutningsgjöld, enginn biðtími frá útlöndum.

Afhending

Sótt á Hvolsvelli eða sent um allt land. Skráin geymd svo auðvelt er að panta fleiri eintök síðar.

Dæmi úr eigin smiðju

Eigin vara — hönnuð frá grunni og seld í dag

3D-prentaður PETG myndavélaarmur fyrir Autodarts pílukerfi

Autodarts myndavélaarmar

Ég hannaði arma sem halda myndavélum í nákvæmri stöðu yfir dartborði — mældir upp, styrkreiknaðir og framleiddir úr PETG. Seldir í dag sem tilbúið kerfi. Sama vinnubragð fær hluturinn þinn.

Skoða pílukerfið
Spurt og svarað

Algengar spurningar

Þarf ég að senda tilbúna teikningu?

Nei. Þú mátt senda STL- eða STEP-skrá ef þú átt hana, en það er alls ekki nauðsynlegt. Flestir senda mér bara ljósmynd, mál eða lýsingu og ég teikna hlutinn frá grunni í CAD.

Hvað kostar þetta?

Það fer eftir stærð, efni og hversu flókin hönnunin er. Hönnunarvinnan er verðlögð sér og prentunin eftir efnismagni. Sendu mér lýsingu og þú færð fast verðtilboð áður en nokkuð er gert.

Hversu stóra hluti getur þú framleitt?

Stakir hlutir allt að um 34 cm á kant í einu stykki. Stærri lausnir hanna ég í einingum sem smella eða skrúfast saman — segðu mér stærðina og ég finn útfærslu.

Getur þú framleitt hluti í fleiri en einum lit?

Já — allt að fjórir litir eða efni í sama hlut. Það þýðir að fyrirtækjamerki, texti eða merkingar eru framleidd beint inn í hlutinn og mást aldrei af. Einnig má blanda efniseiginleikum, t.d. stífum hlut með mjúkum gripfleti.

Getur þú endurgert hlut sem er brotinn?

Yfirleitt já. Ef ég kemst yfir brotna hlutinn eða góðar myndir með málum get ég mælt hann upp og teiknað nákvæma eftirmynd sem er svo hægt að prenta aftur.

Hvað tekur þetta langan tíma?

Einfaldur hlutur getur verið tilbúinn á fáeinum dögum. Flóknari hönnun eða seríuframleiðsla tekur lengri tíma — ég gef þér tímaramma með verðtilboðinu.

Prentar þú bara ef ég sendi skrá?

Já, ég tek líka að mér hreina prentun ef þú átt tilbúna skrá. En sérstaðan mín er hönnunin — ég get hjálpað þér að laga skrána svo hún prentist vel eða hannað hlutinn alveg fyrir þig.

Ertu með hlut í huga?

Sendu mér skissu, ljósmynd eða bara lýsingu á því sem þig vantar. Þú færð fast verðtilboð áður en nokkuð er hannað eða prentað.

[email protected]856 2400

Emstra tölvuþjónusta · Hvolsvöllur · Suðurland