Pílukast sem telur sjálft
Nú geturðu á einfaldan hátt talið sjálfkrafa píluskorið, spilað við aðra á netinu eða í hóp fyrir fram píluspjalið án þess að það kosti of mikið
Gleymdu því að halda skori í hausnum
Autodarts er opinn hugbúnaður sem notar þrjár myndavélar til að sjá nákvæmlega hvar hver píla lendir. Skorið reiknast sjálfkrafa — engin tafla, engin rifrildi um hvort það var triple-20.
Spilaðu ein/n til að æfa, við vini í stofunni, eða keppt við fólk um allan heim í rauntíma. Allt sem þú þarft er borðið, kerfið og skjár.

Les hvert kast
Þrjár myndavélar úr ólíkum hornum staðsetja pílurnar upp á millimetra.
Spilaðu á netinu
Keppt við aðra Autodarts spilara hvar sem er — eða æfðu einn.
Allir leikir
X01, Cricket, Around the Clock og fleira — kerfið heldur utan um allt.
Tvær leiðir
Áttu tölvu og fílar að dútla? Taktu vélbúnaðinn. Viltu bara spila? Ultimate kemur foruppsett.
Veggfesting með myndavélum
Fyrir þá sem eiga tölvu og vilja setja upp sjálfir.
- 3 × Myndavélaarmar (3D-prentaðir á Íslandi)
- 3 × myndavélar, foruppsettar
- Mát fyrir veggfestingu
- Samsettir vegg armar með myndavélum, tilbúið á vegginn
- Snúruleiðsla falin í örmum — engin flækja
Ultimate Plug & Play - Armar, myndavél og tölva
Allt tilbúið. Kveiktu á og spilaðu — engin uppsetning.
- Allt sem fylgir Vélbúnaðarpakkanum
- Foruppsett tölva með hugbúnaði — tilbúinn til notkunar
- Sérhönnuð veggfesting fyrir tölvu með pílugeymslu fyrir 6 pílur
- Straumbreytir og kæling
Sambærilegir armar og myndavélar frá Bretlandi kosta um 30.000 kr með tollum og sendingarkostnaði. Okkar sett eru framleitt, sett saman og send innanlands.
Allt sem þú þarft til að byrja
Ultimate kerfinu fylgir að auki foruppsett smátölva í sérhönnuðu hulstri með spennubreyti og kælingu.

3 myndavélaarmar
Sterkir og góðir armar sem titra ekki við pílukastið
3 HD myndavélar
með 100° linsu, foruppsettar og fókuseraðar fyrir borðið.
Mát fyrir veggfestingu
Settu mátið á vegginn, merktu og boraðu.
Einfalt í uppsetningu
Festu armana
Mátið sýnir nákvæmlega hvar á að bora.
Tengdu
Stingdu myndavélunum í tölvuna þína — eða notaðu tilbúnu smátölvuna í Ultimate kerfinu.
Spilaðu
Autodarts les hvert kast sjálfkrafa og heldur skorinu. X01, Cricket og online keppni.
Heimagert, ekki innflutt

Prentað á Íslandi
Armar og aukahlutir er 3D-prentað hér heima — engin innflutningsgjöld, ódýr póstkostnaður og enginn biðtími frá útlöndum.
Raunverulegt plug & play
Ultimate kerfið kemur foruppsett. Þú kveikir á því og byrjar að spila — lágmarks tölvukunnátta nauðsynleg.
Íslensk þjónusta
Spurningar? Þú talar við mann hér heima, ekki spjallbotta í annarri heimsálfu.
Algengar spurningar
Hvað er Autodarts?
Autodarts er opinn hugbúnaður (autodarts.io) sem notar þrjár myndavélar til að lesa sjálfkrafa hvar pílurnar lenda á borðinu og heldur skorinu fyrir þig. Þú getur spilað X01, Cricket og fleira — og keppt við fólk um allan heim á netinu.
Þarf ég sérstakt dartborð?
Nei, kerfið virkar með venjulegu steel-tip borði. Við mælum með ljóshring (t.d. frá pingpong.is) fyrir jafna lýsingu. Armarnir passa með flestum veggfestum ljóshringjum.
Þarf ég tölvu?
Fyrir Vélbúnaðarpakkann já — þú þarft Windows eða Linux tölvu til að keyra hugbúnaðinn. Ultimate kerfið inniheldur foruppsetta smátölvu, svo þá þarftu enga tölvu.
Hver er munurinn á pökkunum tveimur?
Vélbúnaðarpakkinn er fyrir þá sem eiga tölvu og vilja setja hugbúnaðinn upp sjálfir. Ultimate kerfið bætir við foruppsettri smátölvu í sérhönnuðu hulstri — allt tilbúið, engin uppsetning.
Hvað kostar sending?
Vélbúnaðarpakkinn er sendur í Póstbox á föstu verði, 1.490 kr. Ultimate kerfinu fylgir frí heimsending um allt land.
Tilbúinn að spila?
Sendu okkur línu og við klárum pöntunina. Segðu okkur hvaða pakka þú vilt og hvert á að senda — við sjáum um restina.
Emstra tölvuþjónusta · Ísland
Hafðu samband
Segðu okkur frá verkefninu.
Sendu okkur línu og við svörum eins fljótt og auðið er.